Velkomin

Endilega að commenta þegar þið kíkið við.

*Ný síða!

24. maí 2009 | sunneva

Ég ákvað að búa til nýtt blogg þar sem ég vil hafa það læst. slóðin er www.sunnaeva.bloggar.is þið getið fengið lykilorðið með því að hafa samband við mig með því að senda email á sunneva91@hotmail.com, talað við mig á msn eða á facebook ;)

KV.
Sunneva

Posted in Óflokkað | Engin ummæli »

hmmmm

6. maí 2009 | sunneva

Ég ætlaði að skrifa einhverja svaka ritgerð en svo datt bara allt úr hausnum :/.
En það sem hefur drifið á daga mína er frekar fátt en samt hefur alveg verið nóg að gera! Við Kormákur erum byrjuð aftur að spora og kallinn stendur sig svaka vel, prufuðum að setja millihlut hjá honum og ég treysti honum bara ekki alveg nóg en hann var löngubúin að finna hann á undan okkur, enn og aftur takk kærlega fyrir alla hjálpina og þolinmæðina Dagbjört veit ekki hvar ég væri án þín í öllu þessu spora stússi hehe.
En svo er það endanlega komið að ég er að fara til svíþjóðar á kennel. Verð allan júlí og smá af ágúst. Við vorum að fá fréttir af því að það verða alveg fullt af hvolpum þegar ég verð ef allt gegnur eftir og mikið fjör. Þá er allt það helsta komið sem er að frétta held ég.
Er alltaf að sjá það meira og meira hvað ég kann enganvegin að blogga en það hlítur að koma einn daginn eða hvað?

Með bestu kveðju,
Sunneva

Posted in Óflokkað | 3 ummæli »

Í dag og gær og hinn og hinn og …..

15. apríl 2009 | sunneva

Ekkert alltof dugleg að blogga.. ennn núna ætla ég að bæta það.
Pákarnir:
Mikið labbað mikið veik og mikið stuð. Sem sagt fór mikið út að labba, t.d. fór ég með Dagbjörtu að labba í kringum “fjall” eða hól sem er aðeins fyrir ofan Hvaleyrarvatn. Það var svaka stuð og eftir gönguna fórum við á tún eða fótboltavöllinn sem er við Hvaleyrarvatn og þar hittum við fullt af hundum og mönnum.
Svo fórum við upp á skaga að heimsækja frændfólkið og afa og ömmu, það var svaka stuð hjá Kormáki. Amma ætlaði að gefa kallinum(Komma) kleinu en hann hélt nú ekki en þáði hana með flýti þegar hundur frænku minnar ætlaði að gæða sér á henni, litla frekjan mín haha.
Auðvitað var farið í gáminn, við fórum ég og Dagbjört með Kormák og Uglu. Vorum ógeðslega duglega og bjuggum til litla miní braut, ég tók nokkur video á bara eftir að setja þau saman og klippa og sonna.
En já veikindi…. Er búin að vera drepast úr hósta seinustuviku þannig ég ákvað að skella mér til læknis í gær og þar færði hann mér þau tíðindi að ég væri enþá með þessa bakteríusýkingu sem ég fékk fyrir svona mánuði og þetta er einhvað sem situr eftir í berkjunum or som.. Þannig ég er komin á Ventolin púst í viku og vonandi lagast það bara ef ekki þarf ég að fara á eitthvað púst sem er með sterum?? vonandi ekki…
Svo er maður bara á fullu að klára skólann, aðeins rúmar 2 vikur eftir bara stuð.

Adios

Sunneva

Posted in Óflokkað | 1 ummæli »

Veikindi

26. mars 2009 | sunneva

Þoli ekki að vera veik.. Leiðilegast í heimi að hanga inni allan daginn. Var veik á þriðjudaginn en gat ómögulega verið heima í gær þannig ég fór í skólann og svo út að gám með Dagbjörtu og svo út að labba með Kristínu. Hihi kannski ekki það viturlegasta þegar maður er veikur en hey ég var komin með leið á því að hanga heim og gera ekki neitt. Er samt aftur föst heima að gera ekki neitt þannig ég ákvað að skrifa nokkrar leiðinlegar línu hér híhí. En það var annars allveg geðveikt gaman útí gám og í göngunni :D . læt fylgja með myndir sem Dagbjört tók af Mákalingnum, ótrúlega erfitt að finna bara nokkrar hehe þær eru allar svo flottar.*stolið af http://dabbaorvars.123.is *

hundafimi4.jpghundafimi3.jpgsæti2Sætinn

Posted in Óflokkað | 2 ummæli »

Skemmtilegur göngutúr

23. mars 2009 | sunneva

Jæja komið að fyrstu alvöru færslunni. Það er lítið búið að gerast annað en að ég er bara í fullu í skólanum og læri og læri, held að ég hafi aldrei á æfinni lært svona mikið hehe. Er reyndar líka búin að vera óvenju dugleg að fara með Kormák og leifa honum að hitta aðra hunda og hlaupa smá laus. Hann nýtur þess í botn að fá að skottast úti í náttúrunni en það er svo allt önnur saga þegar hann á að fara í bað eftir gönguna. Hann er jú komin með ágætlega mikin feld og þarf bað eftir hvern göngutúr nema um stuttan túr sé að ræða. Ég brá samt á það ráð á slaugardaginn seinasta að pakka honum inn í bónuspoka og setja hann í galla því daginn áður hafði hann farið í bað og ég nennti ekki að vera baða hann annan daginn í röð takk fyrir.
Áðan fórum við með Kristínu, Dagbjörtu og þeirra voffa stelpum í labbitúr uppá Hvaleyrarvatn, rosa skemmtileg ganga og endalaust gaman að spjalla saman. Dagbjört var alveg þvílíkt duglega á myndavélinni þannig kanski að maður fái nokkrar myndir hjá henni. *blik*blikk*
Þangað til næst,
Sunneva

Posted in Óflokkað | 1 ummæli »

Nýtt blogg

18. mars 2009 | sunneva

Ætla að prufa að setja upp nýtt blog og sjá hvort að ég geti skrifað svona allavegana einu sinni í viku og svo kanski meira þegar líður að sumrinu því þá mun allt gerast. :D

Posted in Óflokkað | Engin ummæli »